Við gerum okkar besta til að leggja aðeins áherslu á verð sem bjóða frábært virði fyrir gesti og því uppfylla sumar dagsetningar ekki kröfur fyrir sérsniðin kynningartilboð. Ef þú takmarkar fjölda gjaldgengra dagsetninga verður kynningartilboðið þitt í raun meira áberandi í leitarniðurstöðum og fangar þannig athygli fleiri gesta.
Þegar við reiknum út afslættina tökum við tillit til miðgildisverðs yfir 60 daga tímabil fyrir hverja dagsetningu. Með öðrum orðum stillum við upp öllu verði hjá þér fyrir þá dagsetningu, frá því lægsta til þess hæsta og verðið sem fellur fyrir miðju er miðgildið.
Ef við höfum ekki 60 daga miðgildisverð fyrir tiltekna dagsetningu, uppfyllir hún ekki kröfur fyrir kynningartilboð. Dagsetningin verður að:
Segjum sem svo að gestur leiti að nótt í júní og að á síðustu 60 dögum hafir þú stillt fjögur mismunandi verð fyrir sömu nótt og gesturinn leitar eftir. Við leitina reiknum við út almennt verð hjá þér fyrir þessa nótt miðað við síðustu 60 daga. Til að gera það bætum við tvenns konar meðalverði við; deilum því með tveimur og fáum þannig miðgildisverð.
Verð 1: USD 90
Verð 2: USD 100
Verð 3: USD 125
Verð 4: USD 140
Miðgildisverð: (USD 100 + USD 125) / 2 = USD 112,50
Síðan berum við miðgildisverðið sem þú hefur sett undanfarna 60 daga saman við núverandi verð á þeirri nótt sem gesturinn leitaði að. Ef núverandi verð er að minnsta kosti 10% lægra en miðgildið (USD 112,50), sýnum við gestinum verð sem er yfirstrikað.
Dæmi: USD 112,50 USD 100
Við viljum að gestgjafar njóti ávinnings af því að bjóða kynningartilboð og því setjum við takmarkanir á dagsetningar með óvenjuhátt verð. Afslátturinn miðast við verð upp að hæst bókaða verðinu hjá þér á síðasta ári. Svona gengur hann fyrir sig: