Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Samfélagsreglur

Heiðarleg samskipti

Gestir og gestgjafar verða að eiga heiðarleg samskipti sín á milli á verkvangi okkar. Engum er heimilt að veita rangar eða villandi upplýsingar á Airbnb

Það sem við þurfum á verkvangi okkar

  • Auðkenni fyrirtækis: Ef þú skráðir þig á Airbnb sem rekstraraðili eða fyrirtæki gætir þú þurft að staðfesta upplýsingar um fyrirtækið eins og skráningarnúmer, heimilisfang og símanúmer.
  • Dæmigerð birgðaskrá: Við leyfum gestgjöfum að skrá mörg herbergi undir einni „dæmigerðri“ skráningu ef herbergin eru nógu lík til að geta talist staðgönguvörur (t.d. á hótelum og í þjónustuíbúðum). Herbergin þurfa þó að vera búin sömu þægindum, hafa eins uppsett rúm, vera af sömu stærð, með eins innréttingar og við sama heimilisfang.

Það sem við leyfum ekki á verkvangi okkar

  • Villandi lýsingar: Gestgjöfum er óheimilt að gefa öðrum meðlimum okkar rangar eða villandi upplýsingar. Við bönnum gestgjöfum stranglega að bjóða eða útvega heimili, þjónustu eða upplifun sem er frábrugðin því sem var auglýst eða er ekki raunveruleg.
  • Röng auðkenning: Þegar þú staðfestir auðkenni þitt eða upplýsingar um fyrirtæki sem aðgangshafi verða allar upplýsingar sem sendar eru inn að vera sannar og réttar. Ekki má nota fölsuð eða breytt gögn.
  • Óvænt beiðni um greiðslu: Gestgjafar ættu ekki að óska eftir viðbótargreiðslu frá gestum sem Airbnb hefur ekki samþykkt fyrir fram eða er ekki tekin fram í skráningarlýsingunni áður en bókun er gerð. Skattar eru óhjákvæmilegir en greiðsla þeirra ætti ekki að koma gestum á óvart. Kynntu þér hvernig skattheimta gengur fyrir sig fyrir gestgjafa.
  • Rangar tilkynningar og kröfur: Þegar þú leggur fram kröfu eða tilkynnir Airbnb um atvik verður þú að gefa sannar og nákvæmar upplýsingar.
  • Kúgun: Að beita beinum eða óbeinum hótunum til að fá eitthvað frá öðrum einstaklingi viðgengst ekki í samfélagi okkar.
  • Misnotkun eða óheiðarleg brögð á Airbnb: Enginn má beita móðgandi orðalagi (óhófleg blótsyrði, persónulegum móðgunum eða rógburði), óheiðarlegum brögðum eða ógnunum (hvort sem þær fela í sér ofbeldi eða ekki) í samskiptum við Airbnb eða fulltrúa okkar.

Við erum þér innan handar

Ef þú verður vitni að eða upplifir hegðun sem brýtur gegn reglum okkar skaltu láta okkur vita.

Þessi viðmið ná ekki yfir öll möguleg tilfelli en þau ættu að gefa almenna yfirsýn á samfélagsreglur Airbnb.

Var þessi grein gagnleg?

Greinar um tengt efni

  • Reglur

    Samfélagsviðmið okkar

    Lestu meira til að fá frekari upplýsingar um samfélagsviðmið okkar.
  • Leiðbeiningar • Gestur

    Að vera tillitssamur gestur

    Tengsl við aðra samfélagsmeðlimi okkar eru lykilatriði í ferðalögum, allt frá því að deila sögunni í æviágripinu að því að skrifa heiðarlegar umsagnir.
  • Leiðbeiningar

    Öryggisábendingar fyrir val á eign

    Kynntu þér hvernig þú finnur gistingu sem þér finnst vera örugg miðað við allt frá einkunnum til öryggiseiginleika.
Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
Innskráning eða nýskráning