Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Samfélagsreglur

Ólöglegt og bannað athæfi

Airbnb leyfir ekki hegðun sem gæti skaðað samfélag okkar. Þegar við verðum vör við að notendur taki þátt í ólöglegum eða bönnuðum athöfnum meðan á bókunum á Airbnb stendur grípum við til aðgerða sem geta falið í sér að aðgangur viðkomandi verði fjarlægður. Við styðjum einnig við rannsóknir sakamála.

Hér að neðan eru nokkur dæmi um það sem við bönnum:

  • Eiturlyf: Notendum er óheimilt að eiga, rækta, framleiða eða dreifa ólöglegum vímuefnum. Gestir verða að fylgja húsreglum gestgjafa varðandi reykingar og notkun löglegra lyfja sem ætti að geyma á öruggum stað svo að þau lendi ekki í höndum óviðkomandi.
  • Kynlífsvinna: Við leyfum ekki kynlífsþjónustu gegn greiðslu í eignum skráðum á Airbnb, jafnvel þar sem slík starfsemi er lögleg. Þetta nær einnig yfir að biðja um, reyna að biðja um, kynna eða bjóða kynlífsþjónustu gegn greiðslu, svo sem vændi eða erótískt nudd.
  • Önnur kynferðisleg afþreying í atvinnuskyni: Ekki ætti að nota skráningar á Airbnb til að búa til klám í atvinnuskyni. Við leyfum ekki heldur að skráningar á Airbnb séu notaðar fyrir aðra kynferðislega þjónustu á Netinu eða í eigin persónu (t.d. fatafellingar).
  • Mansal: Við munum grípa til aðgerða gegn öllum notendum sem taka þátt í eða auðvelda flutning eða varðhald fólks án þess samþykkis í því skyni að misnota viðkomandi. Þetta nær yfir nauðungarvinnu og kynlífsþrælkun.
  • Kynferðisleg misnotkun barna: Við fjarlægjum og tilkynnum alla sem taka þátt í að þvinga, ráðskast með, hvetja eða á annan hátt fá fólk undir 18 ára aldri til að taka þátt í kynferðislegum athöfnum, óháð landslögum.

Við erum þér innan handar

Hafðu samband við löggæslu eða neyðarþjónustu á staðnum ef þú finnur til óöryggis, þú hefur áhyggjur af öryggi annarra eða ef þig grunar að ólögleg starfsemi eigi sér stað. Láttu okkur vita ef þú nærð ekki sambandi. Láttu okkur einnig vita hvað átti sér stað svo að við getum gripið til viðeigandi aðgerða.

Var þessi grein gagnleg?

Greinar um tengt efni

  • Samfélagsreglur

    Hvernig má hjálpa til við að stöðva mansal

    Airbnb á í samstarfi við Polaris til að auka skilning samfélagsins okkar á mansali með fræðslu um birtingarmyndir þess og hvernig bregðast má við grun um mansal í skráðri eign.
  • Reglur • Heimilisgestgjafi

    Ósaka

    Hér eru gagnlegar upplýsingar til að skilja lögin í borginni þinni ef þú ert að hugsa um að gerast gestgjafi á Airbnb.
  • Leiðbeiningar • Gestur

    Hvað verður um nýttan afsláttarkóða ef gestgjafi afbókar

    Felli gestgjafi niður bókun fyrir innritun eða upphafstíma er hægt að nota afsláttarkóðann fyrir aðra bókun nema hann sé útrunninn.
Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
Innskráning eða nýskráning