Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Leiðbeiningar • Upplifunargestgjafi

Að bæta aðgengiseiginleikum við þjónustu- og upplifunarskráningar

Það er dásamlegt að geta boðið enn fleira fólki að taka þátt í upplifun þinni eða þjónustu. Þegar þú bætir aðgengiseiginleikum við skráningu þína geta gestir notað þessa eiginleika í leitarniðurstöðum sínum til að finna upplifanir og þjónustu sem uppfylla sérþarfir vegna aðgengis.

Hvernig þetta virkar

Þú getur breytt skráningu á upplifun eða þjónustu til að leggja áherslu á þá aðgengiseiginleika sem standa gestum til boða í upplifun þinni eða þjónustu. Frekari upplýsingar um að útbúa skráningu sem gestir geta bókað af öryggi.

Svona bætir þú aðgengiseiginleikum við upplifunarskráningu

Svona er upplifunarskráningu breytt í tölvu

  1. Smelltu á skráningar og veldu upplifunina sem þú vilt uppfæra
  2. Smelltu á aðgengiseiginleika og veldu eiginleikann eða eiginleikana sem þú býður upp á


Svona bætir þú aðgengiseiginleikum við þjónustuskráningu

Svona er þjónustuskráningu breytt í tölvu

  1. Smelltu á skráningar og veldu þjónustuna sem þú vilt uppfæra
  2. Smelltu á aðgengiseiginleika og veldu eiginleikann eða eiginleikana sem þú býður upp á

Eiginleikar þínir koma fram í hlutanum um mikilvæg atriði skráningarinnar og væntanlegir gestir geta síað eftir þessum eiginleikum í leit.

Mikilvægt er að gefa ítarlegar og tæmandi upplýsingar um aðgengiseiginleika af því að gestir reiða sig á þær til að ákvarða hvort upplifun eða þjónusta henti þeim. Sumir gestir gætu samt sem áður haft samband við þig til að óska eftir frekari skýringum eða upplýsingum um aðgengiseiginleika í boði hjá þér. Það er góðu lagi að spyrja frekari spurninga ef eitthvað er að vefjast fyrir manni.

Frekari upplýsingar um samkennd og inngildingu á Airbnb er að finna í aðgengisreglum okkar.

Var þessi grein gagnleg?

Greinar um tengt efni

Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
Innskráning eða nýskráning