Reglur Airbnb gegn mismunun voru settar á laggirnar í þeim tilgangi að hvetja til kærleiks og samkenndar innan samfélags okkar. Til að tilkynna efni úr notandalýsingum á Airbnb eða skráningarsíðum sem þú telur að brjóti gegn reglum okkar gegn mismunun, smellir þú eða pikkar á fánatáknið
í Airbnb appinu.
Til að tilkynna skilaboðaskipti við annan notanda á vefsíðu okkar eða í appinu, smellir þú eða pikkar á ítartáknið
og velur síðan tilkynna þessi skilaboð. Til að tilkynna uppákomu innan eða utan verkvangs okkar, eða til að senda ítarlega skýrslu, skaltu hafa samband við okkur. Við biðjum þig um að greina ítarlega frá málinu og tilgreina einstaklinginn sem þú telur hafa brotið gegn reglum okkar gegn mismunun. Sé þér mismunað meðan á ferð stendur og þér finnst öryggi þínu vera stofnað í hættu eða þarft á bráðri aðstoð að halda, getur þú haft samband við öryggisaðstoð okkar sem opin er allan sólarhringinn.
Athugaðu: Hafðu strax samband við neyðarþjónustu eða lögregluna á staðnum ef um neyðartilvik er að ræða eða teljir þú öryggi þínu vera ógnað.
Við munum grípa til viðeigandi ráðstafana ef við komumst að því að notandi hafi brotið gegn reglum okkar gegn mismunun. Þessar ráðstafanir eru mismunandi eftir alvarleika brotsins og geta falið í sér viðvaranir, kröfu um staðfestingu þess efnis að notandinn gangist héðan í frá við reglum okkar gegn mismunun, frystingu eða fjarlægingu skráninga og mögulega frystingu eða fjarlægingu aðgangs viðkomandi á verkvangi Airbnb. Við gætum einnig óskað eftir því að tiltekin orð verði tekin út, hlutir eða myndir sem brotið byggðist á.
Við áskiljum okkur réttinn til að grípa til lagalega ráðstafana vegna brota á þessum reglum utan verkvangs Airbnb undir viðeigandi aðstæðum.
Gildandi lög eða reglugerðir gætu krafist þess að gestgjafar fari gegn því sem kemur fram í reglum okkar gegn mismunun, til dæmis vegna lögbundinna réttinda gests svo sem hjúskaparstöðu, þjóðerni, kyni, kynvitundar eða kynhneigðar. Í slíkum tilvikum krefjum við gestgjafa ekki um að brjóta gegn gildandi lögum eða reglugerðum sem gætu stofnað þeim í hættu eða orðið til lögsóknar.
Gestgjöfum er heimilt að útskýra lagalegar eða reglubundnar takmarkanir sem gestir ættu að vita af með skýrum og málefnalegum hætti.
Hafðu í huga að þar sem reglur okkar gegn mismunun veita notendum meiri vernd heldur en staðbundin vernd gerir (og brjóta ekki gegn gildandi lögum eða reglugerðum), gerum við kröfu um að notendur fylgi reglum okkar. Eins gilda reglur okkar ef ekkert stríðir á móti þeim í gildandi lögum eða reglugerðum. Að lokum getur þú haft samband við þjónustuver okkar ef þú telur að gildandi lög eða reglugerðir skyldi þig til að fara fram með hætti sem samræmist ekki reglum okkar.