Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Leiðbeiningar • Heimilisgestgjafi

Sérstillingar fyrir bókun

Bókanir auðvelda gestum að bóka gistingu og gestgjöfum að samþykkja bókanir án þess að þurfa að fara handvirkt í gegnum þær og staðfesta hverja bókun fyrir sig.

Bjóddu gesti velkomna með hraðbókun

Allir gestir verða að samþykkja húsreglurnar áður en þeir bóka og ef þér líst illa á tiltekna hraðbókun getur þú fellt hana niður. Hins vegar gætu gjöld eða önnur viðurlög átt við ef þú fellir niður bókun gests.

Valfrjálsar stillingar fyrir kröfur til gesta

Allir gestir uppfylla bókunarkröfur Airbnb, en þér er velkomið að bæta við fleiri hvenær sem er úr hraðbókunarstillingunum:

  • Snurðulaus ferðasaga: Afstaðin dvöl án vandræða eða slæmra umsagna.
  • Skilaboð fyrir bókun: Hafðu skilaboð tilbúin fyrir fram með spurningum sem þú berð undir gesti við bókun

Athugaðu: Þú verður að bjóða hraðbókun til að geta bætt við kröfum til gesta við skráninguna.

Kveikja eða slökkva á hraðbókun

Umsjón með bókunarstillingum í tölvu

  1. Smelltu á skráningar og svo á skráninguna sem þú vilt breyta
  2. Pikkaðu á bókunarstillingar og kveiktu eða slökktu á hraðbókun
  3. Tilgreindu kröfur til gesta ef þú kveikir á hraðbókun
  4. Smelltu á vista

Stilling fyrirvara og undirbúningstíma

Til að koma í veg fyrir bókanir á síðustu stundu getur þú stillt bæði fyrirvara og undirbúningstíma milli bókana og við tökum þessa daga sjálfkrafa frá í dagatalinu þínu.

  • Samdægurs (með lokatíma)
  • Að minnsta kosti eins dags fyrirvari
  • Að minnsta kosti tveggja daga fyrirvari
  • Að minnsta kosti þriggja daga fyrirvari
  • Að minnsta kosti sjö daga fyrirvari

Bókanir gerðar minna en 48 klst. fyrir innritun

Hraðbókun er ekki í boði ef gestur bókar minna en 2 dögum fyrir innritun og þarf að mæta utan inritunartímabilsins sem þú hefur tilgreint. Í því tilviki færð þú bókunarbeiðni og getur ákveðið hvort innritunartími gestsins henti þér. Ef svo er ekki ber þér engin skylda til að samþykkja bókunarbeiðnina.

Stilling hámarks- og lágmarksdvalar

Komdu í veg fyrir of langar eða stuttar bókanir með því að stilla hámarks og lágmarks dvalarlengd. Ef þú tilgreinir hvorki hámark né lágmark munum við stilla 31 nátta hámarksdvöl hjá þér með sjáfvirkum hætti.

Bókunarstillingar geta haft áhrif á hvernig skráningin þín birtist í leitarniðurstöðum gesta

Þegar gestir slá inn leitarskilyrði sýnir reikniritið skráningar sem endurspegla þessi skilyrði. Skráningin þín kemur mögulega ekki fram í leitarniðurstöðum ef sé lokað fyrir dagana sem fólk leitar að í dagatalinu þínu, eða ef þú setur kröfur um fyrirvara, undirbúningstíma, góða reynslu af gestum eða annað sem gestirnir uppfylla ekki. Kynntu þér nánar hvernig leitarniðurstöður virka á Airbnb.

Var þessi grein gagnleg?

Greinar um tengt efni

  • Leiðbeiningar • Heimilisgestgjafi

    Svona ganga hraðbókanir fyrir sig

    Bjóddu hraðbókun á heimilisskráningu þinni og slakaðu á—gestaumsjón er orðin þægilegri.
  • Leiðbeiningar • Heimilisgestgjafi

    Bókunarstillingar fyrir gestgjafa

    Hraðbókun auðveldar gestum að bóka gistingu og gestgjöfum að samþykkja bókanir án þess að þurfa að fara handvirkt í gegnum þær og staðfesta hverja bókunarbeiðni sérstaklega.
  • Leiðbeiningar

    Hraðbókun

    Þegar hraðbókun er í boði geta gestir sem uppfylla kröfur gestgjafa bókað samstundis í stað þess að þurfa að fá samþykkta beiðni.
Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
Innskráning eða nýskráning